Mentorprógram fyrir unga lögfræðinga 2025

fimmtudagur, 1. maí 2025

Opið er fyrir umsóknir í Mentorpógram 2025 til 1. maí

Lögfræðingafélag Íslands býður ungum lögfræðingum upp á að taka þátt í mentorprógrammi sjöunda árið í röð.

Hugmyndin er að koma til móts við lögfræðinga sem eru að stíga fyrstu skref á vinnumarkaðinum en skortir tengsl innan lögfræðistéttar eða tækifæri til þess að ræða um starfsþróun, hugmyndir og álitamál varðandi starfsferil sinn og raunhæfa markmiðasetningu.

Reynt verður að leiða saman aðila sem eru reynslumiklir á því sviði sem viðkomandi lögfræðingur starfar og koma þeir sem tekið hafa að sér að vera mentorar úr ýmsum geirum lögfræðinnar, s.s. úr fjármálageiranum, lögmennsku, fyrirtækjalögfræði, stjórnsýslu og úr í háskólaumhverfinu. Gert er ráð fyrir því að aðilar hittist í 3-4 skipti á ca. 12 mánuðum í prógramminu.

Skilyrði til þess að fá mentor er að viðkomandi sé með grunn- og meistaragráðu í lögfræði og sé félagsmaður í Lögfræðingafélagi Íslands. 

 Umsækjendur fylli út meðfylgjandi eyðublað og er umsóknarfrestur til 1. maí.