Gervigreindarfyrirtæki á sviði lögfræði

þriðjudagur, 18. febrúar 2025

Lögfræðingafélag Íslands heldur hádegisverðarfund á Nauthóli þar sem fjögur íslensk fyrirtæki kynna starfsemi sína. Öll þessi fyrirtæki hafa í boði lausnir, verkfæri og þjónustu á sviði gervigreindar sem nýtist lögfræðingum í störfum þeirra. Fundurinn er fullbókaður en hægt er að skrá sig á biðlista.

Þriðjudaginn 18. febrúar kl. 12:00-13:30 heldur Lögfræðingafélag Íslands hádegisverðarfund þar sem fjögur íslensk fyrirtæki, sem veita lögfræðingum þjónustu og lausnir á sviði gervigreindar, kynna starfsemi sína.

Dagskrá

Fordæmi. – Róbert Helgason

Jónsbók – Thelma Christel Kristjánsdóttir

Lagaviti – Jóhannes Eiríksson

Fons Juris – Einar B. Sigurbergsson

Fyrirspurnir og umræður

Fundarstjóri er María Rún Bjarnadóttir, sviðsstjóri RLS og varaformaður Lögfræðingafélags Íslands.

Verð með hádegisverði, ljúffengur fiskur dagsins, kaffi og konfekt, kr. 7.500.- fyrir félaga í LÍ , en kr. 8.500.- fyrir aðra.  Greitt á staðnum.

 

Biðlisti

Rukkað er fyrir fundinn á staðnum