Kynningarfundur á starfsstéttum lögfræðarinnar

miðvikudagur, 6. nóvember 2024

Lögfræðingafélag Íslands kynnir spennandi viðburð fyrir alla laganema og unga lögfræðinga 30 ára og yngri! Komdu og fáðu innsýn í fjölbreytta möguleika innan lögfræðinnar með kynningu á ýmsum starfsstéttum hennar. Fundurinn er kjörinn vettvangur til að öðlast dýpri skilning á þeim fjölbreyttu valmöguleikum innan fagsins og til að spyrja spurninga. Viðburðurinn fer fram miðvikudaginn 6. nóvember kl. 16:00 í dómssal Háskólans í Reykjavík. Gríptu þetta tækifæri og kynntu þér störf okkar lögfræðinga. Vonandi verður þú margs vísari um hvert þú vilt stefna og hvaða leið þú eigir þá að fara! Boðið verður upp á léttar veitingar

Dagskrá:

 

Lögmenn              Oddur Ástráðsson,  Réttur - Aðalsteinsson & Partners

 

Stjórnarráðið       Ásthildur Valtýsdóttir, forsætisráðuneytið

 

Dómarar                Finnur Þór Vilhjálmsson, Héraðsdómur Reykjavíkur

 

Ákæruvaldið         Arnþrúður Þórarinsdóttir, Embætti  Héraðssaksóknara

 

Fyrirtækjalögfr.     Ásgeir Ágústsson, Rapyd Europe

 

Lagadeild hásk.     Hafsteinn Þór Hauksson

 

 

Fundarstjóri Hjördís Halldórsdóttir, formaður Lögfræðingafélags Íslands

 

Skráning: 

Upplýsingar