2026 2 Forsíða Smelltu til að stækka

Tímarit 2026 - 2. hefti

Verð:
3.052 ISK, m/vsk
  • Vörunúmer
    7602
  • Afhendingarmáti
    Þessi vara er aðeins fáanleg með rafrænu niðurhali
  • Útgefandi
    Lögfræðingafélag Íslands

RITSTJÓRNARGREIN: NÝR DÓMUR UNDIRSTRIKAR MIKILVÆGI ÞESS AÐ ENDURSKOÐA SKAÐABÓTALÖG NR. 50/1993

Valgerður Sólnes ritstjóri 

EDITORIAL: NEW JUDGMENT HIGHLIGHTS THE IMPORTANCE OF UPDATING THE COMPENSATION ACT NO. 50/1993

Valgerður Sólnes editor

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.76.2.1

 

UM ÚRBÆTUR Á AÐILD UNDIR REKSTRI EINKAMÁLS

Teitur Gissurarson, aðstoðarmaður dómara við Landsrétt

Útdráttur:

Í greininni er fjallað um heimildir til að bæta úr aðild að einkamáli eftir að rekstur þess hefur hafist fyrir dómstólum. Í greininni eru einkum til skoðunar dómafordæmi Hæstaréttar er varða breytingar á aðild í þeim tilvikum er aðildarhæf lögpersóna kemur í stað ósjálfstæðrar einingar innan lögpersónunnar. Einnig eru tekin til skoðunar sambærileg tilvik er varða aðild íslenska ríkisins. Að lokum eru teknar til rannsóknar nokkrar nýlegar úrlausnir Hæstaréttar og Landsréttar er varða úrbætur á aðild í annars konar tilvikum.

Einkamálaréttarfar. Aðild. Aðildarhæfi. Fyrirsvar.

ON REMEDYING DEFECTS IN PARTY STANDING DURING THE COURSE OF A CIVIL CASE 

Teitur Gissurarson, law clerk at the Landsréttur Court of Appeals

Abstract:

The article discusses the powers to remedy the party standing of a civil case after its proceedings have commenced in court. The article mainly examines case law from the Supreme Court of Iceland regarding changes in standing in cases where a legal entity eligible for standing replaces a unit lacking legal capacity. Similar cases concerning the standing of the Icelandic state are also examined. Finally, several recent rulings from the Supreme Court and the Court of Appeal regarding the remedy of standing in other types of cases are examined.

Civil Procedure. Standing. Legal Capacity. Representation.

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.76.2.2

 

UMBOÐSSVIK Í FJÁRMÁLASTARFSEMI

Jóhannes Sigurðsson, lögmaður og fyrrverandi landsréttardómari, og Þórir Júlíusson lögmaður

Útdráttur:

Í kjölfar falls viðskiptabankanna haustið 2008 komu fram háværar kröfur um að starfsemi bankanna yrði rannsökuð ítarlega og að stjórnendur þeirra yrðu dregnir til ábyrgðar. Embætti sérstaks saksóknara var sett á laggirnar til að annast rannsókn mála og taka ákvarðanir um saksókn. Í greininni eru til skoðunar dómar Hæstaréttar og Landsréttar í 14 sakamálum, kveðnir upp á árunum 2012 til 2021. Í þeim voru stjórnendur banka og sparisjóða ákærðir fyrir umboðssvik samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 vegna atvika sem tengdust bankahruninu. Fyrst er fjallað um inntak 249. gr. hegningarlaga og stöðu ákvæðisins gagnvart öðrum ákvæðum XXVI. kafla laganna um auðgunarbrot. Gerð er grein fyrir skrifum íslenskra fræðimanna um ákvæðið og jafnframt litið til fræðilegrar umfjöllunar um sambærileg ákvæði í norrænum rétti. Sérstaklega er kannað hvort beiting ákvæðisins í dómunum 14 samræmist kenningum fræðimanna. Þá eru reifaðir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) sem varða rannsókn og meðferð nokkurra málanna og gerð grein fyrir þeim annmörkum sem dómstóllinn taldi á þeim. Loks eru dregnar ályktanir af ákæruframkvæmd í umboðssvikamálum, meðferð dómstóla á þeim og beitingu þeirra á 249. gr. hegningarlaga. Metið er hvort þau markmið sem stefnt var að með stofnun embættis sérstaks saksóknara hafi náðst og hvort gagnrýni á embættið og málsmeðferð dómstóla eigi við rök að styðjast.

Umboðssvik. Fjármálastarfsemi. Bankar. Misnotkun. Fjártjónshætta. Auðgunarásetningur.

BREACH OF TRUST IN FINANCIAL SERVICES

Jóhannes Sigurðsson, Attorney at law and former justice at the Landsréttur Court of Appeals, and Þórir Júlíusson Attorney at law

Abstract:

Following the collapse of the commercial banks in the fall of 2008, there were loud demands for a thorough investigation of the banks' operations and for their executives to be held accountable. The Office of the Special Prosecutor was established to conduct investigations and make decisions on prosecution. This article examines the Supreme Court and Court of Appeals decisions in 14 criminal cases, rendered between 2012 and 2021. In those cases, the managers of banks and savings banks were charged with breach of trust under Article 249 of the Penal Code No. 19/1940 for incidents related to the financial collapse. First, the content of Article 249 of the Penal Code and the provision's position in relation to other provisions of Chapter XXVI of the law on breach of trust are discussed. The writings of Icelandic scholars on the provision are reviewed, and reference is also made to academic discussions of comparable provisions in Nordic law. In particular, it is examined whether the application of the provision in the 14 judgments is consistent with scholarly theories. The judgments of the European Court of Human Rights concerning the investigation and prosecution of several of the cases are then reviewed, and the shortcomings the Court found in them are described. Finally, conclusions are drawn from the prosecution practice in breach of trust cases, the courts' handling of them, and their application of Article 249 of the penal code. It is evaluated whether the goals pursued by the establishment of the Office of the Special Prosecutor were achieved and whether criticisms of the office and the courts' procedures are justified.

Breach of trust. Financial activities. Banks. Abuse. Risk of financial loss. Intent to enrich oneself.

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.76.2.

 

HUGLEIÐINGAR UM RANNSÓKNIR Í LÖGFRÆÐI

Stefán Már Stefánsson prófessor emerítus

REFLECTIONS ON LEGAL RESEARCH 

Stefán Már Stefánsson Professor Emeritus

DOI: https://doi.org/10.33112/tl.76.2.4