Lög Félags lögfræðinga í fyrirtækjum

1. gr.

Félag lögfræðinga í fyrirtækjum („FLF“) starfar innan Lögfræðingafélags Íslands. Lögheimili félagsins, varnarþing og póstfang er hið sama og Lögfræðingafélags Íslands.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna lögfræðinga sem starfa hjá fyrirtækjum, fjalla um og skapa umræðu innan félagsins um störf lögfræðinga í fyrirtækjum, fjalla um áhugaefni þeirra innan lögfræðinnar og stuðla að auknum samskiptum meðal þeirra, svo og að efla samskipti lögfræðinga almennt.

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa að fræðslu sem tengist störfum lögfræðinga í fyrirtækjum og samkomuhaldi fyrir félagsmenn.

4. gr.

Félagar geta orðið allir lögfræðingar sem starfa í fyrirtækjum, selja ekki út lögfræðiþjónustu sína eða fyrirtækisins til þriðja aðila og eru í Lögfræðingafélagi Íslands.

5. gr.

Stjórn skal skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara. Stjórn skal kjósa sér formann en skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórn skal kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn.  Stjórn er heimilt að skipa í nefndir til að sinna ákveðnum verkefnum.

6. gr.

Stjórn félagsins skal gefa aðalfundi Lögfræðingafélagsins skýrslu um störf félagsins árlega.

7. gr.

Heimilt er að ákveða sérstakt árgjald fyrir deildina, skal það ákveðið á aðalfundi. Hyggist stjórn leggja tillögu fyrir aðalfund um upptöku árgjalds eða breytingu á því, skal þess sérstaklega getið í fundarboði.

8. gr.

Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 1. júní ár hvert. Stefnt skal að því að halda félagsfundi reglulega

9. gr.

Aðalfund og aðra deildarfundi skal boða með bréfi, rafrænt eða í pósti, með hæfilegum fresti. Í boði til aðalfundar skal greina dagskrá og umfjöllunarefni skal tilkynna í öðrum fundarboðum.

10. gr.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Skýrsla um fjárhag.
  3. Umræður um skýrslur.
  4. Kosning stjórnar.
  5. Árgjald ákveðið
  6. Lagabreytingar
  7. Önnur mál

11.gr.

Lögum þessum verður ekki breytt nema á lögmætum félagsfundi FLF, enda greiði meira en helmingur fundarmanna atkvæði með breytingunni. Tillögur að breytingum á lögum FLF verða ekki teknar fyrir nema þeirra hafa verið getið í fundarboði.


Samþykkt af stofnfundi deildarinnar þann 27. apríl 2016 og breytt á aðalfundi 27. maí 2020.