LÖG ÁORKU - ÁHUGAHÓPS UM ORKURÉTT

samþykkt á stofnfundi 27. nóvember 2018 

 

1. gr.

Áhugahópur lögfræðinga um orkurétt („ÁORKA") starfar innan Lögfræðingafélags Íslands. Lögheimili félagsins, varnarþing og póstfang er hið sama og Lögfræðingafélags Íslands.

 

2. gr.

Tilgangur félagsins er að skapa vettvang fyrir óháða og faglega umræðu á sviði orkunýtingar í víðum skilningi, efla tengslanet meðal íslenskra lögfræðinga á sviði orkuréttar innbyrðis og gagnvart sambærilegum félögum eða lögfræðingum erlendis, auka áhuga og skilning á orkurétti og stuðla að fræðilegum rannsóknum á þessu sviði.

 

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að standa að fræðslu á sviði orkuréttar, standa að ráðstefnum og öðrum uppákomum og taka þátt í innlendu og alþjóðlegu samstarfi sem samræmist tilgangi félagsins eftir efnum og aðstæðum hverju sinni.

 

4. gr.

Félagar geta orðið allir lögfræðingar sem eru í Lögfræðingafélagi Íslands.

 

5. gr.

Stjórn skal skipuð þremur til fimm aðalmönnum og allt að tveimur varamönnum, allt eftir ákvörðun aðalfundar þegar kjör fer fram. Stjórn skal kjósa sér formann en skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórn skal kosin á aðalfundi til tveggja ára í senn. Stjórn er heimilt að skipa í nefndir til að sinna ákveðnum verkefnum.

 

6. gr.

Stjórn félagsins skal gefa aðalfundi Lögfræðingafélagsins skýrslu um störf félagsins árlega.

 

7. gr.

Heimilt er að ákveða sérstakt árgjald fyrir ÁORKU, skal það ákveðið á aðalfundi. Hyggist stjórn leggja tillögu fyrir aðalfund um upptöku árgjalds eða breytingu á því, skal þess sérstaklega getið í fundarboði.

 

8. gr.

Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 1. júní ár hvert.

 

9. gr.

Aðalfund og aðra deildarfundi skal boða með bréfi, rafrænt eða í pósti, með hæfilegum fresti. Í boði til aðalfundar skal greina dagskrá og umfjöllunarefni skal tilkynna í öðrum fundarboðum.

 

10. gr.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Skýrsla um fjárhag.
  3. Umræður um skýrslur.
  4. Kosning stjórnar.
  5. Árgjald ákveðið
  6. Lagabreytingar
  7. Önnur mál

 

11.gr.

Lögum þessum verður ekki breytt nema á lögmætum félagsfundi ÁORKU, enda greiði meira en helmingur fundarmanna atkvæði með breytingunni. Tillögur að breytingum á lögum ÁORKU verða ekki teknar fyrir nema þeirra hafa verið getið í fundarboði.