Frétt

02.02.2023 -

Mentorprógramm Lögfræðingafélags Íslands

Lögfræðingafélag Íslands býður ungum lögfræðingum upp á að taka þátt í mentorprógrammi fimmta árið í röð.

Hugmyndin er að koma til móts við lögfræðinga sem eru að stíga fyrstu skref á vinnumarkaðinum en skortir tengsl innan lögfræðistéttar eða tækifæri til þess að ræða um starfsþróun, hugmyndir og álitamál varðandi starfsferil sinn og raunhæfa markmiðasetningu.

Reynt verður að leiða saman aðila sem eru reynslumiklir á því sviði sem viðkomandi lögfræðingur starfar og koma þeir sem tekið hafa að sér að vera mentorar úr ýmsum geirum lögfræðinnar, s.s. úr fjármálageiranum, lögmennsku, fyrirtækjalögfræði, stjórnsýslu og úr í háskólaumhverfinu.

Skilyrði til þess að fá mentor er að viðkomandi sé með grunn- og meistaragráðu í lögfræði og sé félagsmaður í LÍ. 

Áformað er að verkefnið hefjist 1. mars 2023 og muni standa fram að áramótum. Gert er ráð fyrir því að aðilar hittist í 3-4 skipti á þeim tíma.


Umsækjendur fylli út meðfylgjandi eyðublað og er umsóknarfrestur til 15. febrúar. 

Umsóknarfresti er lokið

Hafa samband